You are currently browsing the category archive for the 'Hugleiðingar' category.

Ég ætla ekki að tala um úrslit kosninganna af því mig langar ekki til þess☺ Jeij!

Ég ætla þess vegna að tala um allt milli himins og jarðar annað en kosningar☺

Til dæmis um….. Jóga? Sem er skemmtilegt. Fyrst fór ég í jóga afþví að mamma tók mig með og satt að segja fannst mér þetta svona frekar leim og skildi ekki hvað allir voru ánægðir með þetta, ég gæti alveg eins teygt á heima hjá mér og gert magaæfingar (sem ég geri btw aldrei). Síðan fattaði ég að jóga er frábært og finnst að allir eigi að prufa það. Setti allskonar linka hérna til hægri. M.a. þar sem ég fer í jóga, sex tímar í boði á viku ef maður borgar 8.500 kr. Gildir til 1 júní. Jóga er málið…☺

Eðaaa…orð. Lets feis itt, það eru nú flestir með einhverskonar þráhyggju hvort sem það er orð, að telja (tröppur/skref/munnbita/ofl), brjóta saman á ákv. hátt, o.s.frv.…ég er allavega með fullt af svona “þráhyggjum” og mig grunar stundum að ég sé með smávegis asperger heilkenni. Eitt af mínum þráhyggjum eru orð.
Var að velta fyrir mér orðinu “hamingja” sem er eins og flestir vita “happiness” á ensku. “Happiness” er náttúrulega mun þægilegra. “Hamingja” þýðir í rauninni ekkert nema bara “hamingja” (hvað er það? ham-ingja, ha-mingja? Haming-ja???) á íslensku og þess vegna eigum við rosa erfitt með að skilgreina hana. Höfum ekki hugmynd um hvort við erum hamingjusöm eða ekki afþví orðið er e-ð skrítið. Orðið “happiness” aftur á móti er auðveldara í túlkun, happy er einfaldlega bara “glaður” og “happiness” er þessvegna bara gleði eða gleðitilfinning. Sem þýðir (í mínum heimi allavega) að hamingja sé einfaldlega bara að vera sem oftast glaður. Restin er einföld – þú gerir einfaldlega bara það sem gerir þig glaðan og þá ertu hamingjusamur☺ Ég er búin að finna tilgang lífsin…tadaaaaa:D

Af því tilefni er gleðihorn dagsins(sem dreifir gleði og gerir þar með alla hamingjusama) þessi glaði maður…tadaaaaa:D

tadaLifið heil (og hamingjusöm)

Krummi lipurtá:D

Ég er með sjúkdóm sem heitir Valkvíði og fæ valkvíðakast við ótrúlegustu tækifæri. Á þessvegna til dæmis ótrúlega erfitt í kring um kosningar en tókst samt að ákveða mig inni í kjörklefanum í dag bara út af pressunni…aðrir verða að komast að líka, annars eru þetta ekki kosningar. Var búin að hafa áhyggjur af þessu í rúma viku, las og las um jákvæðar og neikvæðar hliðar evrópusambandsins, hátekjuskatt, stóriðju og ýmislegt fleira og var eiginlega búin að ákveða að fara í þykjustuleik um helgina, þykast að það væru engar kostningar, þykjast að ég ætti ekki útvarp og ekki sjónvarp og krota bara x á spegilinn minn með varalit afþví pabbi sagði að minns yrði að setja x-ið einhverstaðar. Tók mig samt saman í andlitinu og fór að kjósa, varla hægt að vera í þykjustuleik endalaust, stóð inni í klefanum í korter og færði blýantinn á milli tveggja kassa þangað til ég varð orðin rangeygð. Endaði með því að ég setti x-ið í annan reitinn…er enn ekki viss hvort það var rétti reiturinn, en það var þó gert með góðri trú eftir bestu sannfæringu.

Einn af kostunum við þetta x er samt ekki fleiri áróðurssímtöl, – bæklingar, -bréf, – auglýsingar og tómar rökræður og vonandi fækkar líka fólkinu sem finnst fáránlegt að mér finnst ekki það sama og því og er sannfært um nauðsyn þess að ég fái nú að vita allan sannleikann, sem er einfaldlega ekki til að mínu mati. Vúhú!

Gleðihorn dagsins:

Mér líður svona…vona að þér líði eins..:)

glec3b0ihopp

Eigið gott kosningakvöld

KosningaKrummi

GleÐilGt SuMAar! Víhí! Vaknaði meira að segja með sumarlykt í nebbanum í morgun. Hún var góð:)

Markið er sett hátt í sumar, sat fyrirlestur um markmiðasetningu um daginn þar sem þjálfari handboltalandsliðsins (sem hefur efni á að tala um markmiðasetningu að mínu mati) sagði að markmið ættu í rauninni alltaf að vera “óraunhæf”. Hljómar undarlega en hann rökstuddi þetta svo vel og var líka með ólympíumedalíu um hálsinn (sem var þetta “óraunhæfa” markmið sem hann setti sér) sem sannfærði mig enn frekar um að hann vissi kannski alveg hvað hann væri að tala um:)

Ákvað að taka hann til fyrirmyndar og stefna á mín “fyrstu þrjú sæti”, þ.e. að hlaupa 10 km. 10 km er kannski engin brjáluð vegalengd nema fyrir fólk sem nennir ekki að standa upp úr sófanum á kvöldin til þess að fara að sofa, semsagt fólk eins og mig. Fyrir mig  eru 10 km eins og að lyfta fjalli og það ætla ég að gera þann 22. ágúst í Reykjavíkurmaraþoninu. Vill einhver koma með? Þegar ég verð búin að því þá ætla ég að fara smá að gráta og kaupa mér síðan verðlaunapening sem stendur á að ég sé awesome markmiðanáari:D Þangað til þá heldur Jóhann áfram að murka úr mér lífið til þess að ég geti staðið við þetta alltsaman. Gaman Gaman. Var til dæmis eins og vínber á litin áðan þegar við komum af skokkinu okkar, gaman að segja frá því..:)

Gleðihorn dagsins.

Afþví það er sumardagurin fyrsti þá var náttúrulega rigning í dag. Hérna er sólin sem hefði átt að vera, þá erum við allavega með sól í hjarta:) Og þið sem eruð í Danmörku, lokiði augunum afþví þið hafið ekki gott af meiri sól, þessi sól er bara fyrir íslendinga í blautum sokkum eftir að hafa stigið í sumardagsinsfyrstapoll.

solAu bientot

SumarKrummi flowers

13 dagar í heimkomu!

Thad er stutt

Vid hlokkum til jólanna!

Jeeeij!

 

Thà erum vid loksins komin og sest ad ì Valparaìso ì Chile um òàkvedinn tìma. Erum bùin ad lofa sjàlfum okkur thvì ad fara aldrei aftur ì rùtu yfir Andesfjollin, ad minnsta kosti ekki ì nokkrar vikur eda thangad til ad vid erum bùin ad gleyma hvad vid vorum hraedd (og hvad tollurinn tók langan tìma). Fòrum haest ì 4000 m haed og tha er frekar hatt nidur. Virkar haerra thegar thad eru engin vegrid, engar stikur og engar merkingar fyrir utan skiltin sem segja thèr hvad eru margar òthaegilega glannalegar brekkur og beygjur eftir. Thegar vid vorum hinsvegar komin nidur urdu allir mjog gladir, èg klappadi meira ad segja smà, vid lifandi og landslagid eins og à hinu fullkomna púsluspili eins og Birna ordadi thad. Svolìtid toff ad vera ad koma nidur ùr Andesfjollunum thar sem fòlk var à skìdum ì snjònum, inn ì allt annad landslag fullt af gródri og litlum sveitabaejum og vera svo thar sem vid erum nùna thar sem fòlk liggur à strondinni ì sòlbadi og drekkur pina colada. Allt ì einu og sama landinu.

Hostelid sem vid fundum er yndislegt fyrir utan einn lìtinn breskan saekòpata sem gerir hinum ìbùunum lìfid leitt. Hann talar stanslaust og er med allar samsaeriskenningar dagsins ì dag à hreinu. Vid erum mikils vìsari um ýmislegt eftir ad hafa spjallad vid hann. Hverjum hefdi til daemis dottid ì hug ad kìnverjar vaeru ekki til? Ekki mèr ad minnsta kosti. Hann lagdi meira ad segja fram sonnun: „Getur thù eldad kìnverskan mat vel? nei? sko! Kìnverjar eru ekki til!!!“…??? vid vorum eitt spurningamerki en leyfdum honum samt ad halda àfram: „Thid getid samt aeft ykkur ad borda med prjònum, nota bara grilltong fyrst til ad nà thvì betur, en hùn verdur samt ad vera ùr trèi svo ad thid rispid ekki ponnuna afthvì ad thà rydgar hùn og ryd à eftir ad valda heimsendi.“ …jaaaà okeeey, haltu àfram…“Einu sinni var èg ad drukkna ì Àstralìu en thà taemdi èg lungun og lèt mig sokkva til botns svo èg gaeti spynnt mèr til lands…“ mhmmmm….interesting! „ Sà lìka kengùru ì Àstralìu. Kengúra er gáfadasta dýr í heimi thví thegar thú naer augnkontakti vid hana lítur hún eitthvert annad thannig ad thu horfir thangad. Thegar thu litur til baka er hún horfin“ …nùjaeja…! Hehe Hann sagdist hafa fluid fra Bretlandi fyrir rùmu àri eftir ad hafa misst ùtur sèr upplýsingar um varnarherstod ì Loch Ness sem hefdi flaett inn ì vegna smàrra jardskjàlfta. Hann hafdi verid handtekinn af logreglunni àn nokkurrar àstaedu, ordid svo reidur ad hann blòtadi stanslaust ì klefanum og logreglan nàd ad taka thetta upp thegar hann missti thetta ùtfyrir varirnar ì reidikastinu. Vegna thessara mistaka vard hann ad flýja land. Hann sagdist samt thekkja varnarmàlaràdherra Breta sem hefdi varad hann vid ýmsum hàttsettum ràdamonnum ì Bretlandi sem stunda svartagaldur upp til hòpa og nota galdrastafi og rùnir, svo hann vaeri bara oruggari ì Chile. Sagan endadi svo à thví ad Bretar vaeru flestir heimskir og omurlegir, enda er hann ekki breti heldur af aettum maejaindjàna og kynni ad skrifa allar rùnir heims. Hann sagdist heldur alls ekki vera frìmùrari aftvì ad thà vaeri hann dàinn, en fjolskyldan hans vaeri thad samt. Bràdum aetlar hann svo ad skreppa til Mexìkò til ad sanna tilvist geimvera, thaer hafast vid à theim slòdum. Svo hèlt hann àfram ad tala um pìsmerkid og stadfestingu à yfirvofandi kjarnorkustrìdi sem faelist ì tvì og ad pìsmerkid vaeri krossfesting krists à hvolfi. Svo mà madur aldrei treysta logreglu ì svortum einkennisbùning af tvì ad thar vaeri Gestapo à ferdinni. Hann var svo rekinn ì burtu thegar hann byrjadi ad hòta fòlki ad lemja thad ì hnakkann og kippast til ì andlitinu à medan hann taladi um karma.

Hann er skrítinn.

Get ekki sett inn myndir ennthà, forum vaentanlega à internetkaffi ì dag eda à morgun thar sem tolvan á hostelinu er mjog gomul.

Kv. VId

Það rann upp fyrir okkur í morgun að við leggjum af stað “ekki á morgun heldur hinn”. Það er mjög stutt! Eftir að hafa velt þessu fyrir sér fram og til baka síðan í febrúar er mjög fyndið að þetta sé bara að fara að skella á. Horfum í vantrú á bakpokana sem við náðum í út í bílskúr áðan og glottum. Svolítið súrrealískt andrúmsloft.

Hver hefði samt trúað því að bakpokar væru flókin fyrirbæri? Ekki ég. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og gisk getum við ekki fundið tilgang fyrir helminginn af öllum þessum hólfum, teygjum og böndum sem virðast sum hver ekki enda neinstaðar eða vera föst nema í annan endan.

Og hvað á maður að hafa neðst? spyr Jóhann…Þetta verður erfitt:)

En svona ef okkur tekst að finna út úr þessu í tíma þá leggjum við af stað til Parísar eldsnemma á Sunnudagsmorgni. Hressandi! Gistum þar eina nótt og fljúgum svo til Mílanó. Þaðan förum við svo beint til Sao Paulo í Brasilíu. Þar skilst mér að veðurfræðingarnir eigi erfitt með að ákveða hvort það verði 28 stiga hiti og sól eða þrumuveður. Kannski bara bæði, hver veit?

Við sjáumst þá væntanlega bara næst í Sao Paulo í Brasilíu.

Þangað til þá…

Krummi Lipurtá og Jói Spói

11 dagar í þetta og allt að smella saman. Það var pínulítið vesen með síðustu bólusetninguna (Yellow Fever). Ég fann fína síðu, ferdavernd.is, með upplýsingum og ráðgjöf um ferðamannabólusetningar. Þeir framkvæma líka bólusetningar svo ég hringdi og pantaði tíma. Í öllu atinu gleymdi ég að sjálfsögðu að spyrja hvað þær kostuðu. Birna hringdi þessvegna aftur í þeim erindum en konan sem svaraði vildi ekki gefa upp verð… Ég er eitt spurningamerki. ? Ef ég færi í Ikea og segði: “Afsakaðu, hvað kostar þessi sófi?” og afgreiðslumaðurinn svaraði: “Tjah, það vil ég ekki segja þér” þá segi ég ekki “heyrðu ég á alltof mikið af peningum, ég tek hann!” Ég segi: “Jahá!” fer út úr búðinni og kaupi sófa sem ég veit hvað kostar. Við ákváðum semsagt að versla þar sem við gætum verið viss um hvað við þyrftum að borga fyrir þjónustuna svo við pöntuðum tíma á heilsugæslunni í Glæsibæ. Þar var konan í afgreiðslunni ekkert nema indæl og almennileg. Svo indæl að ég var komin með það fram á varirnar en svo hugsaði ég að þannig endaði maður ekki símtöl við ókunnugar manneskjur. “Bless og takk fyrir, þú ert frábær, indæl og almennileg kona:)”? Svo ég stillti mig og sagði takk fyrir og bless með bros á vör. Kannski heyrði hún það.

 

Gleðimaðurinn

Gleðimaðurinn á ströndinni

Sendi henni og öllum sem eru glaðir og kurteisir í dag þessa mynd af gleðimanninum á ströndinni og bið þá að halda áfram að gleðja aðra. Það ætla ég að minnsta kosti að reyna að gera:) Og viti menn, hann er á strönd…og við sem verðum á strönd eftir 12 daga með bros út að eyrum. En gaman:D

 

Kv. Krummi Lipurtá