You are currently browsing the category archive for the 'Hid ljúfa líf' category.

Um daginn fékk ég eitt af mínum reglulegu bjartsýnisköstum. Málið með mín bjartsýnisköst: þau sprengja alla skala. Í þessu kasti skráði ég mig í Jump Fit, þrisvar sinnum í viku klukkan sex á morgnanna.

Jóhann: Whaaaaaat!?! Án grins! Þú nennir ekki einu sinni að tala á morgnanna og borðar morgunmatinn með lokuð augun!
Krummi: Ég veit☺ og btw – ég skráði þig líka….ekki gaman??? :D

Ég og Jói að sippa saman:D Oooo!

Ég og Jói að sippa saman:D Oooo!

Í síðasta kasti skráði ég mig í Reykjavíkur-maraþonið og borgaði hvorki meira né minna en þrjúþúsundkall fyrir að fá að hlaupa um stræti Reykjavíkur í rauðum bol ! Ekki enn farin að sjá fram á hvernig ég ætli að klára mig af þessari vegalengd en það kemur í ljós.

Fyrst ætla ég allavega að reyna að klára mig af sippinu. Það er gaman að sippa er það ekki? Átti klikkað regnbogasippuband með glimmeri þegar ég var sjö, spurning hvort ég verði ekki að láta eitthvað sportsippuband nægja í bili, held að Jói tæki sig samt ágætlega út með hitt, ætlað reynað finna það:) Hann verður glaður:D

Svo er kannski spurning um að í næsta bjartsýniskasti verði markmiðið sett lægra eða farið hægar í sakirnar: mig langar til Taílands:D

Krummi (og Jói ) sem ætla að vakna klukkan hálfsex á morgun og farað sippa…

Hef aldrei á ævinni beðið svona fast eftir einu litlu bréfi. Þegar það síðan kom var taugatitringurinn orðinn það mikill að ég varð að róa mig niður í smá stund áður en ég náði að peppa sjálfa mig upp í að opna það…plísplísplísplísplísplís!!!…opnaði það með lokuð augun og kíkti svo…”Það er mér gleðiefni að tilkynna þér að….” *gleðihopp* wahhhh ég komst inn ég komst inn ég komst inn!!! Eintóm gleði!

Gleðihorn dagsins: Ég komst inn í arkitektúr í Listaháskóla Íslands:D Svííít! Ég bý á skýi! 90 sem sóttu um, 15 sem komust inn svo ég er sátt. Byrja 24. ágúst svo hér með erum við hjúin að leita okkur að íbúð í nágrenni við LHÍ og HÍ. Við lofum að vera bestu leigjendur heimsins!

P.s. ég var sjóræningi um helgina…það var gaman. Takk fyrir gott sjóræningjaskrall jú pæreits!

Ahoy! Krummi sjóræningi og verðandi arkitekt! IMG_5845

Sofnaði seint, svaf ekkert svo vel og vaknaði snemma…með ÓlaLokbrár-sand í augunum. Ekki frá því að maður sé aðeins slappur líka…? Svo er kalt úti, rigning og frekar svona drungalegt yfir öllu auk þess sem það er Sunnudagur. Ég held þetta séu nóg og margar ástæður fyrir kósýkvöldi í kvöld, kúr undir teppi í ullarsokkum og náttbuxum, með stýrur í augunum, dregið fyrir og bara kveikt á einum lampa og kertum og Stellu í orlofi í imbanum….mmm, kaldir sunnudagar eru góðir dagar:)

Svo er náttúrulega júróvisjón að byrja bráðum…ástæða fyrir enn meira kúr:) Ég elska kúr…

Gleðihorn dagsins – Ævintýri frá Noregi:)

Áfram Noregur! :D

Krummi föðurlandsvikari…

Ég ætla ekki að tala um úrslit kosninganna af því mig langar ekki til þess☺ Jeij!

Ég ætla þess vegna að tala um allt milli himins og jarðar annað en kosningar☺

Til dæmis um….. Jóga? Sem er skemmtilegt. Fyrst fór ég í jóga afþví að mamma tók mig með og satt að segja fannst mér þetta svona frekar leim og skildi ekki hvað allir voru ánægðir með þetta, ég gæti alveg eins teygt á heima hjá mér og gert magaæfingar (sem ég geri btw aldrei). Síðan fattaði ég að jóga er frábært og finnst að allir eigi að prufa það. Setti allskonar linka hérna til hægri. M.a. þar sem ég fer í jóga, sex tímar í boði á viku ef maður borgar 8.500 kr. Gildir til 1 júní. Jóga er málið…☺

Eðaaa…orð. Lets feis itt, það eru nú flestir með einhverskonar þráhyggju hvort sem það er orð, að telja (tröppur/skref/munnbita/ofl), brjóta saman á ákv. hátt, o.s.frv.…ég er allavega með fullt af svona “þráhyggjum” og mig grunar stundum að ég sé með smávegis asperger heilkenni. Eitt af mínum þráhyggjum eru orð.
Var að velta fyrir mér orðinu “hamingja” sem er eins og flestir vita “happiness” á ensku. “Happiness” er náttúrulega mun þægilegra. “Hamingja” þýðir í rauninni ekkert nema bara “hamingja” (hvað er það? ham-ingja, ha-mingja? Haming-ja???) á íslensku og þess vegna eigum við rosa erfitt með að skilgreina hana. Höfum ekki hugmynd um hvort við erum hamingjusöm eða ekki afþví orðið er e-ð skrítið. Orðið “happiness” aftur á móti er auðveldara í túlkun, happy er einfaldlega bara “glaður” og “happiness” er þessvegna bara gleði eða gleðitilfinning. Sem þýðir (í mínum heimi allavega) að hamingja sé einfaldlega bara að vera sem oftast glaður. Restin er einföld – þú gerir einfaldlega bara það sem gerir þig glaðan og þá ertu hamingjusamur☺ Ég er búin að finna tilgang lífsin…tadaaaaa:D

Af því tilefni er gleðihorn dagsins(sem dreifir gleði og gerir þar með alla hamingjusama) þessi glaði maður…tadaaaaa:D

tadaLifið heil (og hamingjusöm)

Krummi lipurtá:D

Hvernig væri að skrifa framtíðarblogg? Svona you-are-the-master-of-your-own-destiny- blogg…

Mitt yrði svona:

Úff hvað næsta vika verður frábær! Ætla að fara í bæinn að versla í tóma fataskápinn minn sem verður bara gaman af því ég á eftir að passa í öll fötin sem mér finnst fín og svo eru þau ódýr líka…en gaman! Síðan ætla ég að fara á kaffihús og panta mér stóórann sviss mokka sem verður sá besti sem ég hef smakkað, heppilegt! Svo ætla ég að keyra heim uppdressuð með besta kaffi í heimi og syngja hástöfum með útvarpinum sem spilar bara skemmtileg lög akkurat þann hálftímann:) Ég ætla líka að fara út að hlaupa, hitta einhvern skemmtilegann sem ég hef ekki hitt lengi lengi, teikna fallega útskriftarnema, horfa á nýja How I met your mother sem verður sko fyndinn, fá fullt af hressu fólki í heimsókn og uppgötva eitthvað awesome! Ofl. Ofl. Ofl. skemmtilegt…Og síðan ætla ég náttúrulega að kjósa rétt…;)

Ekkert litlar væntingar, heppilegt að þetta verður akkúrat svona og jafnvel enn betra…! :D

Gleðihorn dagsins:

Þessi mynd “made my day” í gær. Langar á hana í bíó…aftur. Og það gerist ekki oft.


Túdilú…

Vegna mikils þrýstings frá Dönum (og líka ákveðnum Íslendingum) sem hitta mig ekki úti í Horni annanhvern dag (long storí) hef ég ákveðið að blogga.

Það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast. Ekki fræðilegur að ég nenni að segja frá því í smáatriðum…stiklað á stóru? Ég flutti, varð 21 árs, fann nám, fór í nám, kláraði nám, sótti um nám og núna er ég bara heima að baka:)

Ég fann semsagt loksins nám sem hentaði mér fullkomlega, flís við rass. Og viti menn…það var bara tveir mánuðir! Hlaut að vera! Þetta voru samt alveg splendid tveir mánuðir þar sem ég lærði ýmislegt það mikilvægt og skemmtilegt að ég er hissa að hafa komist af án þess hingað til. Og ég er líka hissa á að hafa lært þetta allt á bara tveimur mánuðum og skemmt mér jafn mikið á meðan! Gleðifréttirnar fyrir ykkur er að þetta verður endurtekið, sjá hér og hér☺ Gleðifréttirnar fyrir mig eru að núna er ég nýfæddur Prismalingur, regnbogi og ýmislegt fleira sem er frábært. Spennan er að gleipa mig. Með fylgja myndir af skemmtilegasta lokaverkefni heims sem ég að sjálfsögðu tók of bókstaflega, kostur í þessu tilfelli, eins og aðra daga. Úr varð afar metnaðarfullt abstraktrisateiknimyndasöguhandrit : Krummi09, Soon in theaters.

Áhugasamir um útgáfurétt og annað hafi samband við mig:)

Núna er ég allavega með blað upp á 16 eininga diplómagráðu, Prisma, frá Bifröst og Listaháskóla Íslands og veit enn ekki hvernig ég á að svara spurningunni “Og hvað svo?” nema núna finnst mér hún bara ekkert óþægileg. Sem er gott☺

Á meðan ég er að bíða eftir svari við umsóknum frá Listaháskóla Íslands, Kunstakademiets Arkitekthojskole, Arkitektskolen i Aarhus, Krabbesholm, Borupshojskole, Háskóla Íslands og jafnvel fleirum hef ég tekið upp á því að baka, sem er gaman og teikna fallega útskriftarnemendur ásamt fleiru skemmtilegu. Hugmynd að næstu jólagjöf – blýantsskopteikning á línuna?

Það er vorfuglasöngur úti eeeen ég nennti ekki að taka hann upp svo þetta er bara gleðihorn dagsins í staðin.

Gleðihorn dagsins: Where the hell is Matt? …efast ekki um að Matt sé frábær maður.

Koss til ykkar :*

Krummi

Erum komin til Rio de Janeiro

Thad er geggjad!

Vid aetlum ad skoda staerdsta fljótandi jólatré í heimi

sem er fimm metrum haerra en Hallgrímskirkja

og jesústyttuna

sem er fraegasta stytta í heimi

og svo aetlum vid ad kaupa okkur tosku

svo bakpokinn okkar springi ekki

og jafnvel kíkja adeins á Cobacabana beach

sem er hérna rétt hjá

Mikid ad gera á svona stuttum tíma

svo ég aetla ekki ad hanga á netinu

heldur fara út í sólina

Vid hlokkum til ad koma í alvoru jólastemmningu

í London

og koma svo heim í jólin

ádur en vid springum úr jólaskapi

ííí!

 

Sjáumst eftir viku…

Allir velkomnir ad koma og fadma okkur

thegar vid komum heim!

Knús

Jólavid

funny-santa-claus-dance

Gaman ad segja frá thví…sídan vid komum á brasilísku sólarstrondina hofum vid ordid vitni ad brjáludustu rigningu allra tíma. Hún er reyndar ad lagast núna, orugglega afthví ad allt vatnid hérna megin á jordinni er búid, og vid lágum í sólbadi á strondinni í dag. Fengum thaer upplysingar ad vid hofum rétt nád restinni af regntímabilinu, get ekki sagt ad thad hafi verid rosa frábaert og vid séum thrilld en sólin er allavega komin núna og aetlar ad okkur skilst ad vera áfram. Jesú vinnur líka á thessu líka frábaera hosteli sem vid erum á svo vid gaetum ekki verid betur sett. Veitingastadur, billjard og bordtennis, sjónvarp, internet, kajakaleiga og strondin fimm skref í burtu. Jesú er bara bónus og sér um ad vedrid verdi gott vid okkur.

Núna aetlum vid samt aftur í sólbad svo vid getum komid brún heim og montad okkur…thad verdur gaman

Kv. Vid (og Jesú)

Vid erum komin! Lengsta rútuferd allra tíma ordin ad minningu afthví ad hún er BÚIN! jeeeeeeeij…

Vid erum komin á hostelid okkar í Bonito. Hér er regnskógur, hér er sól og hiti,  hér er hengirúm,  hér er sundlaug, hér eru sólbekkir  og hér erum vid:)    Hver veit nema madur fari ad snorkla á morgun?

Var rútuferdin thess virdi? Tvímaelalaust!

Farin í sólbad…

kv. Vid