You are currently browsing the category archive for the 'Daglegt líf' category.
Sumarið er komið, enginn vafi á því, sólin er komin til að vera. Það eru köngulórnar samt líka…, sem mér finnst ekkert geggjað. Þær eru út um allt, maður ætlar að fara úr skónum og styður sig við vegginn, úps…kramin könguló, maður er að teygja á úti á palli, í sólbaði eða rúmið manns staðsett rétt fyrir neðan gluggan, þær eru út um allt! Því fylgja að sjálfsögðu nett panicattacks með danski, öskrum og tilheyrandi hrolli sem ætlar aldrei að fara og endar í stjörfu augnaráði uppi á stól.Hví?

Kalli Könguló
Hvað varð um þá gömlu góðu daga þegar köngulóastofnar voru ræktaðir í krukkum og köngulærnar látnar hlaupa upp og niður hendur og fætur og þjálfaðar í að hanga? Maður spyr sig. Þær komust meira að segja stundum ofaní hálsmálið án þess að neinn kippti sér upp við það. “Ohh hún týndist einhverstaðar í fötunum mínum” og síðan dró maður annað grey á löppinni upp úr krukkunni og lét hana hanga í lófanum. Maður náttúrulega nýbúinn að kynna sér málin og lesa Andrésblað um flóasirkus og ætlaði aldeilis að græða á köngulóm og dordinglum hverfisins. Síðan gerðist eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Fylgir þetta aldrinum? Ég er allavega búin að reyna og reyna að láta mér líka vel þessi dýr afþví það væri svo miklu einfaldara en allt kemur fyrir ekki, get ekki einusinni potað í þær. Og trúið mér, ég er búin að reyna ýmislegt. Spurning um að horfa á teiknimyndir þar sem góðar köngulær bjarga málunum og athuga svo…
Gleðihorn dagsins: er fyrir þá sem enn ætla sér að meika það með köngulóadordinglasirkus. Við hin bíðum spennt…Hérna er fróðleikur um íslenskar köngulær og svo er meira að segja könnun á netinu sem hægt er að spreyta sig á (án endurgjalds) og athuga hvað maður veit mikið um íslenskar köngulær. Ég fékk þrjú rétt af sjö…
Kveðja, Krummi Könguló…
Ég er með sjúkdóm sem heitir Valkvíði og fæ valkvíðakast við ótrúlegustu tækifæri. Á þessvegna til dæmis ótrúlega erfitt í kring um kosningar en tókst samt að ákveða mig inni í kjörklefanum í dag bara út af pressunni…aðrir verða að komast að líka, annars eru þetta ekki kosningar. Var búin að hafa áhyggjur af þessu í rúma viku, las og las um jákvæðar og neikvæðar hliðar evrópusambandsins, hátekjuskatt, stóriðju og ýmislegt fleira og var eiginlega búin að ákveða að fara í þykjustuleik um helgina, þykast að það væru engar kostningar, þykjast að ég ætti ekki útvarp og ekki sjónvarp og krota bara x á spegilinn minn með varalit afþví pabbi sagði að minns yrði að setja x-ið einhverstaðar. Tók mig samt saman í andlitinu og fór að kjósa, varla hægt að vera í þykjustuleik endalaust, stóð inni í klefanum í korter og færði blýantinn á milli tveggja kassa þangað til ég varð orðin rangeygð. Endaði með því að ég setti x-ið í annan reitinn…er enn ekki viss hvort það var rétti reiturinn, en það var þó gert með góðri trú eftir bestu sannfæringu.
Einn af kostunum við þetta x er samt ekki fleiri áróðurssímtöl, – bæklingar, -bréf, – auglýsingar og tómar rökræður og vonandi fækkar líka fólkinu sem finnst fáránlegt að mér finnst ekki það sama og því og er sannfært um nauðsyn þess að ég fái nú að vita allan sannleikann, sem er einfaldlega ekki til að mínu mati. Vúhú!
Gleðihorn dagsins:
Mér líður svona…vona að þér líði eins..:)

Eigið gott kosningakvöld
KosningaKrummi
GleÐilGt SuMAar! Víhí! Vaknaði meira að segja með sumarlykt í nebbanum í morgun. Hún var góð:)
Markið er sett hátt í sumar, sat fyrirlestur um markmiðasetningu um daginn þar sem þjálfari handboltalandsliðsins (sem hefur efni á að tala um markmiðasetningu að mínu mati) sagði að markmið ættu í rauninni alltaf að vera “óraunhæf”. Hljómar undarlega en hann rökstuddi þetta svo vel og var líka með ólympíumedalíu um hálsinn (sem var þetta “óraunhæfa” markmið sem hann setti sér) sem sannfærði mig enn frekar um að hann vissi kannski alveg hvað hann væri að tala um:)
Ákvað að taka hann til fyrirmyndar og stefna á mín “fyrstu þrjú sæti”, þ.e. að hlaupa 10 km. 10 km er kannski engin brjáluð vegalengd nema fyrir fólk sem nennir ekki að standa upp úr sófanum á kvöldin til þess að fara að sofa, semsagt fólk eins og mig. Fyrir mig eru 10 km eins og að lyfta fjalli og það ætla ég að gera þann 22. ágúst í Reykjavíkurmaraþoninu. Vill einhver koma með? Þegar ég verð búin að því þá ætla ég að fara smá að gráta og kaupa mér síðan verðlaunapening sem stendur á að ég sé awesome markmiðanáari:D Þangað til þá heldur Jóhann áfram að murka úr mér lífið til þess að ég geti staðið við þetta alltsaman. Gaman Gaman. Var til dæmis eins og vínber á litin áðan þegar við komum af skokkinu okkar, gaman að segja frá því..:)
Gleðihorn dagsins.
Afþví það er sumardagurin fyrsti þá var náttúrulega rigning í dag. Hérna er sólin sem hefði átt að vera, þá erum við allavega með sól í hjarta:) Og þið sem eruð í Danmörku, lokiði augunum afþví þið hafið ekki gott af meiri sól, þessi sól er bara fyrir íslendinga í blautum sokkum eftir að hafa stigið í sumardagsinsfyrstapoll.
Au bientot
SumarKrummi ![]()
Hvernig væri að skrifa framtíðarblogg? Svona you-are-the-master-of-your-own-destiny- blogg…
Mitt yrði svona:
Úff hvað næsta vika verður frábær! Ætla að fara í bæinn að versla í tóma fataskápinn minn sem verður bara gaman af því ég á eftir að passa í öll fötin sem mér finnst fín og svo eru þau ódýr líka…en gaman! Síðan ætla ég að fara á kaffihús og panta mér stóórann sviss mokka sem verður sá besti sem ég hef smakkað, heppilegt! Svo ætla ég að keyra heim uppdressuð með besta kaffi í heimi og syngja hástöfum með útvarpinum sem spilar bara skemmtileg lög akkurat þann hálftímann:) Ég ætla líka að fara út að hlaupa, hitta einhvern skemmtilegann sem ég hef ekki hitt lengi lengi, teikna fallega útskriftarnema, horfa á nýja How I met your mother sem verður sko fyndinn, fá fullt af hressu fólki í heimsókn og uppgötva eitthvað awesome! Ofl. Ofl. Ofl. skemmtilegt…Og síðan ætla ég náttúrulega að kjósa rétt…;)
Ekkert litlar væntingar, heppilegt að þetta verður akkúrat svona og jafnvel enn betra…!
Gleðihorn dagsins:
Þessi mynd “made my day” í gær. Langar á hana í bíó…aftur. Og það gerist ekki oft.
Túdilú…
Erum komin til Rio de Janeiro
Thad er geggjad!
Vid aetlum ad skoda staerdsta fljótandi jólatré í heimi
sem er fimm metrum haerra en Hallgrímskirkja
og jesústyttuna
sem er fraegasta stytta í heimi
og svo aetlum vid ad kaupa okkur tosku
svo bakpokinn okkar springi ekki
og jafnvel kíkja adeins á Cobacabana beach
sem er hérna rétt hjá
Mikid ad gera á svona stuttum tíma
svo ég aetla ekki ad hanga á netinu
heldur fara út í sólina
Vid hlokkum til ad koma í alvoru jólastemmningu
í London
og koma svo heim í jólin
ádur en vid springum úr jólaskapi
ííí!
Sjáumst eftir viku…
Allir velkomnir ad koma og fadma okkur
thegar vid komum heim!
Knús
Jólavid
13 dagar í heimkomu!
Thad er stutt
Vid hlokkum til jólanna!
Jeeeij!
Gaman ad segja frá thví…sídan vid komum á brasilísku sólarstrondina hofum vid ordid vitni ad brjáludustu rigningu allra tíma. Hún er reyndar ad lagast núna, orugglega afthví ad allt vatnid hérna megin á jordinni er búid, og vid lágum í sólbadi á strondinni í dag. Fengum thaer upplysingar ad vid hofum rétt nád restinni af regntímabilinu, get ekki sagt ad thad hafi verid rosa frábaert og vid séum thrilld en sólin er allavega komin núna og aetlar ad okkur skilst ad vera áfram. Jesú vinnur líka á thessu líka frábaera hosteli sem vid erum á svo vid gaetum ekki verid betur sett. Veitingastadur, billjard og bordtennis, sjónvarp, internet, kajakaleiga og strondin fimm skref í burtu. Jesú er bara bónus og sér um ad vedrid verdi gott vid okkur.
Núna aetlum vid samt aftur í sólbad svo vid getum komid brún heim og montad okkur…thad verdur gaman
Kv. Vid (og Jesú)
Stòd frammi fyrir erfidri àkvardannatoku thegar vid komum til San Pedro de Atacama, à èg ad làta mig hafa ììsdrullukalda sturtu eda fara bara ekkert ì sturtu og fà drulludredda ì hàrid? Gòd spurning. Kostirnir vid dredda eru ad their eru toff, madur tharf ekki ad greida sèr og enginn thorir ad ràdast à mann aftvhì ad madur lìtur ùt fyrir ad vera mjog hardur og lìklegur til alls. Kostirnir vid kalda sturtu eru engir svo èg àkvad ad thetta vaeri sà tìmi ì lìfi mìnu sem èg lèti hàrid à mèr verda svo skìtugt ad thad yrdi ad dreddum. Jòhanni fannst thad ekki gòd hugmynd og henti mèr ì sturtu. Thessi fràbaera hugmynd verdur thvì ad bìda betri tìma.
Fyrir utan einungis kalt vatn er San Pedro yndislegt lìtid fjallathorp, ca. 2500 metra haed yfir sjàvarmàli. Hèr er fràbaert og yndislegt ad vera, rùmlega 25 stiga hiti, mùrsteinshùs, hengirùm, malarvegir og kaupmadur à horninu:D Okkur lìdur vel!
Fòrum ì ferd ì Valle de la luna (Mànadalinn), Valle de la muerte (Daudadalinn) og fleiri stadi. Gengum um Valle de la muerte thar sem ekkert lìf thrifst og hlupum nidur sandoldu à tàsunum sem var med tvhì skemmtilegra sem èg hef gert, thad var geggjad! Endudum svo à thvì ad horfa à sòlarlagid uppi à fjalli ì thjòdgardinum og sjà fjollin verda fjòlublà og himininn graenann. Draumur!
Svo eru ad sjàlfsogdu komnar myndir af thessu ollu sem thid getid sèd hèrna til haegri eda inni à http://www.flickr.com/hrafnhildurm. Gaman gaman:D
Fórum á fótboltaleik, River Plate – blàtt lid. Jóhann kannski fyllir í eydurnar thar sem ég var mestallan tímann ad horfa á studningsmennina. Aldrei séd svoan marga lagvissa menn samankomna á einum stad. Sungu heilu login lidinu til studnings allir hoppandi allan tímann, merkilegt! Ég veit thó ad River Plate topudu, sem var leidinlegt thar sem vid hefdum viljad sjá fagnadarlaetin brjótast út í lok leiks, en vid fengum thó jofnunarmark í seinni hálfleik thar sem allir klikkudust. Thad var upplifun. Tókum vídjó sem vid aetlum ad sýna skjálftamonnum thegar vid komum heim, their verda blódheitasta studningslid á landinu.
Las madres de la Plaza de Mayo rolta á hverjum fimmtudegi í kringum torgid med hvíta slaedu og mynd af ástvinum sem hurfu í strídinu á áttunda áratugnum. Thetta er ordinn fastur lidur, búid ad mála slaedur á stéttina hringinn í kringum torgid og fullt af fólki sem kemur og sýnir teim studning.

Slaedan
Heimsóttum svo Recoleta kirkjugardinn. Thar hvílir Evita ásamt morgu odru merkilegu fólki. Thú tharft semsagt ad eiga fullt af pening eda ad hafa verid mjog gódur á thínu svidi til ad vera lagdur til hvílu í eina af thessum grafhvelfingum. Mjog margir doktorar tharna til daemis, og hermenn. Og svo ad sjálfsogdu konurnar theirra sem týndu nafninu sýnu og fjolskyldan oll.
Tharna var haegt ad kíkja inn um gluggan á sumum “húsunum”. Thar var altari og stigi nidur thar sem kisturnar voru geymdar í hillunum. Tharna voru líka veggir med hólfum thar sem heilu fjolsyldurnar lágu til hvílu, stundum yfir 20 manns. Ótrúlegur metnadur lagdur í flest húsin, marmari og útskornar styttur af englum og hermonnum sem stódu vord. Fleiri myndir inni á flickr.
Kíktum svo á Antikmarkad í San Telmo. Thar var haegt ad fjárfesta í ollu á milli himins og jardar. Endalausir solubásar med eldgomlum eyrnalokkum, perlufestum, silfurhnífaporum, kjólum, gleraugum, bókum, frímerkjum, hurdarhúnum og bara nefndu thad. Svo voru audvitad básar med nýjum hlutum inni á milli. Gaman ad skoda og kósý ad rolta á medal fólksins í góda vedrinu.

ýmislegt sem haegt var ad fá...
Í gaerkvoldi fórum vid svo ad laera ad dansa tangó. Fórum á klúbb sem vinkona hennar Veru fronskukennara fer alltaf á og hittum hana thar. Jóhann var frekar stressadur enda mér ad maeta ef hann myndi ekki standa sig…hehe. Thetta var svona frekar flókid alltsaman thar sem thetta var ekki byrjendakúrs en allir stódu sig mjog vel, thar á medal Jóhann sem kom sjálfum sér mjog á óvart og var mjog hissa á thví ad dans gaeti bara alveg verid skemmtilegur. Thá eru thad bara dansnámskeid thegar vid komum heim:)
Fyrir utan allt thetta hofum vid bara rolt um og skodad ýmislegt. Erum rétt hjá Floridaverslunargotunni. Thar faest besti ís í heimi. Jóhann býr thar.
Aetludum líka ad fara og fá okkur alvoru steik en fórum óvart á hladbord í stadinn…??? Reynum aftur í kvold.
Svo eru komnar nokkar myndir inn á flickr. Getid ýtt á myndirnar til haegri til ad komast thar inn.
Erum svo á leidinni á vínekrurnar í Mendoza á thridjudaginn:D
Sjáumst thá:D
Sit hèrna à barnum à Hostelinu sem vid erum à í midborg Buenos Aires. Stràkarnir komust ì billjard og eru mjog sàttir med sitt:) Turfum allavega ekki ad hafa áhyggjur af teim à medan;)
Iguazu fossarnir voru ì einu ordi òtrùlegir. Fengum frábaert vedur, regnbogar út um allt í údanum og allt fullt af allskonar fidrildum. Reyni ad setja inn myndir sem fyrst, tolvukerfid ekki upp á sitt besta hér á bae…
En nú erum vid semsagt komin til Buenos Aires. Tókum Argentínska lazyboyrútu sem átti ad vera í 18 klukkutíma á leidinni en var í 21. Vid vitum enn ekki hvad gerdist en tar sem vid vorum stopp í 3 klst og sáum mikid af sjúkrabílum hollumst vid helst ad tví ad tad hafi ordid slys.
Lìtur samt ùt fyrir ad ferdalagid verdi ordlìtid dyrara en aetlad var vegna lèlegs gengis. Erum ad spà ì ad geyma allar kvittanir og rukka ìslenska vidskiptamarkadinn um glatadar krónur tegar vid komum heim…
En vid aetlum ekki ad hafa àhyggjur af tví nùna. Núna aetlum vid bara ad hafa tad kósý, vera kyrr à sama stad ì meira en viku og skoda umhverfid. Vid aetlum lìka ad halda àfram ad njóta tess ad vera ì fríi, fà okkur bjòr à 100 kall og liggja ì sòlinni à milli;) mmmmm hver veit nema vid kaupum okkur eitt par af fallegum skom…
Kvedja Hrafnhildur og Jói




