Um daginn fékk ég eitt af mínum reglulegu bjartsýnisköstum. Málið með mín bjartsýnisköst: þau sprengja alla skala. Í þessu kasti skráði ég mig í Jump Fit, þrisvar sinnum í viku klukkan sex á morgnanna.
Jóhann: Whaaaaaat!?! Án grins! Þú nennir ekki einu sinni að tala á morgnanna og borðar morgunmatinn með lokuð augun!
Krummi: Ég veit☺ og btw – ég skráði þig líka….ekki gaman???

Ég og Jói að sippa saman:D Oooo!
Í síðasta kasti skráði ég mig í Reykjavíkur-maraþonið og borgaði hvorki meira né minna en þrjúþúsundkall fyrir að fá að hlaupa um stræti Reykjavíkur í rauðum bol ! Ekki enn farin að sjá fram á hvernig ég ætli að klára mig af þessari vegalengd en það kemur í ljós.
Fyrst ætla ég allavega að reyna að klára mig af sippinu. Það er gaman að sippa er það ekki? Átti klikkað regnbogasippuband með glimmeri þegar ég var sjö, spurning hvort ég verði ekki að láta eitthvað sportsippuband nægja í bili, held að Jói tæki sig samt ágætlega út með hitt, ætlað reynað finna það:) Hann verður glaður:D
Svo er kannski spurning um að í næsta bjartsýniskasti verði markmiðið sett lægra eða farið hægar í sakirnar: mig langar til Taílands:D
Krummi (og Jói ) sem ætla að vakna klukkan hálfsex á morgun og farað sippa…


6 comments
Comments feed for this article
3 júní, 2009 kl. 09:54
Steinunn Anna
Hahaha!! Veistu samt Hrafnhildur, það er vel þess virði að vakna klukkan sex á morgnanna til að mæta í jump fit, það er OF gaman!!
Öfunda ykkur ekkert smá.. Gangi ykkur vel í þessu 
En hvað ætlarðu að hlaupa í maraþoninu? 42 kílómetra bara?
3 júní, 2009 kl. 16:27
Hjördís
oh mig langar líka:/
4 júní, 2009 kl. 18:19
Heiðrún Erna
Hljómar vel!! haha, nenniru samt að biðja Jóa um að taka upp á myndband þegar þú reynir að drössla þér svona snemma á fætur… það er örugglega fyndið
Líst vel á þetta allt saman hjá þér
5 júní, 2009 kl. 06:42
Kristín Grímsdóttir
Bwahahaha…. þú ert snillingur. Gangi ykkur vel ! Geri ráð fyrir að þú hafir verið að fara útúr dyrunum í þessum skrifuðu.. ?
5 júní, 2009 kl. 13:23
Laufey Ósk
haha
þetta er geggjað gaman og vel þess virði. gangi ykkur vel!
16 júní, 2009 kl. 14:51
Sunna Kristín
Hihih ég man eftir flotta plast regnbogasippubandinu:D ennþá með harðsperrur?