You are currently browsing the monthly archive for maí, 2009.

Hef aldrei á ævinni beðið svona fast eftir einu litlu bréfi. Þegar það síðan kom var taugatitringurinn orðinn það mikill að ég varð að róa mig niður í smá stund áður en ég náði að peppa sjálfa mig upp í að opna það…plísplísplísplísplísplís!!!…opnaði það með lokuð augun og kíkti svo…”Það er mér gleðiefni að tilkynna þér að….” *gleðihopp* wahhhh ég komst inn ég komst inn ég komst inn!!! Eintóm gleði!

Gleðihorn dagsins: Ég komst inn í arkitektúr í Listaháskóla Íslands:D Svííít! Ég bý á skýi! 90 sem sóttu um, 15 sem komust inn svo ég er sátt. Byrja 24. ágúst svo hér með erum við hjúin að leita okkur að íbúð í nágrenni við LHÍ og HÍ. Við lofum að vera bestu leigjendur heimsins!

P.s. ég var sjóræningi um helgina…það var gaman. Takk fyrir gott sjóræningjaskrall jú pæreits!

Ahoy! Krummi sjóræningi og verðandi arkitekt! IMG_5845

Sofnaði seint, svaf ekkert svo vel og vaknaði snemma…með ÓlaLokbrár-sand í augunum. Ekki frá því að maður sé aðeins slappur líka…? Svo er kalt úti, rigning og frekar svona drungalegt yfir öllu auk þess sem það er Sunnudagur. Ég held þetta séu nóg og margar ástæður fyrir kósýkvöldi í kvöld, kúr undir teppi í ullarsokkum og náttbuxum, með stýrur í augunum, dregið fyrir og bara kveikt á einum lampa og kertum og Stellu í orlofi í imbanum….mmm, kaldir sunnudagar eru góðir dagar:)

Svo er náttúrulega júróvisjón að byrja bráðum…ástæða fyrir enn meira kúr:) Ég elska kúr…

Gleðihorn dagsins – Ævintýri frá Noregi:)

Áfram Noregur! :D

Krummi föðurlandsvikari…

Sumarið er komið, enginn vafi á því, sólin er komin til að vera. Það eru köngulórnar samt líka…, sem mér finnst ekkert geggjað. Þær eru út um allt, maður ætlar að fara úr skónum og styður sig við vegginn, úps…kramin könguló, maður er að teygja á úti á palli, í sólbaði eða rúmið manns staðsett rétt fyrir neðan gluggan, þær eru út um allt! Því fylgja að sjálfsögðu nett panicattacks með danski, öskrum og tilheyrandi hrolli sem ætlar aldrei að fara og endar í stjörfu augnaráði uppi á stól.Hví?

Kalli Könguló

Kalli Könguló

Hvað varð um þá gömlu góðu daga þegar köngulóastofnar voru ræktaðir í krukkum og köngulærnar látnar hlaupa upp og niður hendur og fætur og þjálfaðar í að hanga? Maður spyr sig. Þær komust meira að segja stundum ofaní hálsmálið án þess að neinn kippti sér upp við það. “Ohh hún týndist einhverstaðar í fötunum mínum” og síðan dró maður annað grey á löppinni upp úr krukkunni og lét hana hanga í lófanum. Maður náttúrulega nýbúinn að kynna sér málin og lesa Andrésblað um flóasirkus og ætlaði aldeilis að græða á köngulóm og dordinglum hverfisins. Síðan gerðist eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Fylgir þetta aldrinum? Ég er allavega búin að reyna og reyna að láta mér líka vel þessi dýr afþví það væri svo miklu einfaldara en allt kemur fyrir ekki, get ekki einusinni potað í þær. Og trúið mér, ég er búin að reyna ýmislegt. Spurning um að horfa á teiknimyndir þar sem góðar köngulær bjarga málunum og athuga svo…

Gleðihorn dagsins: er fyrir þá sem enn ætla sér að meika það með köngulóadordinglasirkus. Við hin bíðum spennt…Hérna er  fróðleikur um íslenskar köngulær og svo er meira að segja könnun á netinu sem hægt er að spreyta sig á (án endurgjalds) og athuga hvað maður veit mikið um íslenskar köngulær. Ég fékk þrjú rétt af sjö…

Kveðja, Krummi Könguló…