Ég er með sjúkdóm sem heitir Valkvíði og fæ valkvíðakast við ótrúlegustu tækifæri. Á þessvegna til dæmis ótrúlega erfitt í kring um kosningar en tókst samt að ákveða mig inni í kjörklefanum í dag bara út af pressunni…aðrir verða að komast að líka, annars eru þetta ekki kosningar. Var búin að hafa áhyggjur af þessu í rúma viku, las og las um jákvæðar og neikvæðar hliðar evrópusambandsins, hátekjuskatt, stóriðju og ýmislegt fleira og var eiginlega búin að ákveða að fara í þykjustuleik um helgina, þykast að það væru engar kostningar, þykjast að ég ætti ekki útvarp og ekki sjónvarp og krota bara x á spegilinn minn með varalit afþví pabbi sagði að minns yrði að setja x-ið einhverstaðar. Tók mig samt saman í andlitinu og fór að kjósa, varla hægt að vera í þykjustuleik endalaust, stóð inni í klefanum í korter og færði blýantinn á milli tveggja kassa þangað til ég varð orðin rangeygð. Endaði með því að ég setti x-ið í annan reitinn…er enn ekki viss hvort það var rétti reiturinn, en það var þó gert með góðri trú eftir bestu sannfæringu.
Einn af kostunum við þetta x er samt ekki fleiri áróðurssímtöl, – bæklingar, -bréf, – auglýsingar og tómar rökræður og vonandi fækkar líka fólkinu sem finnst fáránlegt að mér finnst ekki það sama og því og er sannfært um nauðsyn þess að ég fái nú að vita allan sannleikann, sem er einfaldlega ekki til að mínu mati. Vúhú!
Gleðihorn dagsins:
Mér líður svona…vona að þér líði eins..:)

Eigið gott kosningakvöld
KosningaKrummi


3 comments
Comments feed for this article
25 apríl, 2009 kl. 20:01
Stebbi
ertu að grínast hvað ég fékk mikið valkvíðakast!
ég skilaði bara auðu…
25 apríl, 2009 kl. 20:12
Krummi
autt er ekki til í mínum orðaforða…, varð að velja…
26 apríl, 2009 kl. 22:21
Sunna Kristin
kvittikvitt…eg skiladi bara skít…næsti sem spilar vid mig myllu fær x fra mer!
Góla nodd