You are currently browsing the daily archive for apríl 23rd, 2009.

GleÐilGt SuMAar! Víhí! Vaknaði meira að segja með sumarlykt í nebbanum í morgun. Hún var góð:)

Markið er sett hátt í sumar, sat fyrirlestur um markmiðasetningu um daginn þar sem þjálfari handboltalandsliðsins (sem hefur efni á að tala um markmiðasetningu að mínu mati) sagði að markmið ættu í rauninni alltaf að vera “óraunhæf”. Hljómar undarlega en hann rökstuddi þetta svo vel og var líka með ólympíumedalíu um hálsinn (sem var þetta “óraunhæfa” markmið sem hann setti sér) sem sannfærði mig enn frekar um að hann vissi kannski alveg hvað hann væri að tala um:)

Ákvað að taka hann til fyrirmyndar og stefna á mín “fyrstu þrjú sæti”, þ.e. að hlaupa 10 km. 10 km er kannski engin brjáluð vegalengd nema fyrir fólk sem nennir ekki að standa upp úr sófanum á kvöldin til þess að fara að sofa, semsagt fólk eins og mig. Fyrir mig  eru 10 km eins og að lyfta fjalli og það ætla ég að gera þann 22. ágúst í Reykjavíkurmaraþoninu. Vill einhver koma með? Þegar ég verð búin að því þá ætla ég að fara smá að gráta og kaupa mér síðan verðlaunapening sem stendur á að ég sé awesome markmiðanáari:D Þangað til þá heldur Jóhann áfram að murka úr mér lífið til þess að ég geti staðið við þetta alltsaman. Gaman Gaman. Var til dæmis eins og vínber á litin áðan þegar við komum af skokkinu okkar, gaman að segja frá því..:)

Gleðihorn dagsins.

Afþví það er sumardagurin fyrsti þá var náttúrulega rigning í dag. Hérna er sólin sem hefði átt að vera, þá erum við allavega með sól í hjarta:) Og þið sem eruð í Danmörku, lokiði augunum afþví þið hafið ekki gott af meiri sól, þessi sól er bara fyrir íslendinga í blautum sokkum eftir að hafa stigið í sumardagsinsfyrstapoll.

solAu bientot

SumarKrummi flowers