Vegna mikils þrýstings frá Dönum (og líka ákveðnum Íslendingum) sem hitta mig ekki úti í Horni annanhvern dag (long storí) hef ég ákveðið að blogga.
Það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast. Ekki fræðilegur að ég nenni að segja frá því í smáatriðum…stiklað á stóru? Ég flutti, varð 21 árs, fann nám, fór í nám, kláraði nám, sótti um nám og núna er ég bara heima að baka:)
Ég fann semsagt loksins nám sem hentaði mér fullkomlega, flís við rass. Og viti menn…það var bara tveir mánuðir! Hlaut að vera! Þetta voru samt alveg splendid tveir mánuðir þar sem ég lærði ýmislegt það mikilvægt og skemmtilegt að ég er hissa að hafa komist af án þess hingað til. Og ég er líka hissa á að hafa lært þetta allt á bara tveimur mánuðum og skemmt mér jafn mikið á meðan! Gleðifréttirnar fyrir ykkur er að þetta verður endurtekið, sjá hér og hér☺ Gleðifréttirnar fyrir mig eru að núna er ég nýfæddur Prismalingur, regnbogi og ýmislegt fleira sem er frábært. Spennan er að gleipa mig. Með fylgja myndir af skemmtilegasta lokaverkefni heims sem ég að sjálfsögðu tók of bókstaflega, kostur í þessu tilfelli, eins og aðra daga. Úr varð afar metnaðarfullt abstraktrisateiknimyndasöguhandrit : Krummi09, Soon in theaters.

Núna er ég allavega með blað upp á 16 eininga diplómagráðu, Prisma, frá Bifröst og Listaháskóla Íslands og veit enn ekki hvernig ég á að svara spurningunni “Og hvað svo?” nema núna finnst mér hún bara ekkert óþægileg. Sem er gott☺
Á meðan ég er að bíða eftir svari við umsóknum frá Listaháskóla Íslands, Kunstakademiets Arkitekthojskole, Arkitektskolen i Aarhus, Krabbesholm, Borupshojskole, Háskóla Íslands og jafnvel fleirum hef ég tekið upp á því að baka, sem er gaman og teikna fallega útskriftarnemendur ásamt fleiru skemmtilegu. Hugmynd að næstu jólagjöf – blýantsskopteikning á línuna?
Það er vorfuglasöngur úti eeeen ég nennti ekki að taka hann upp svo þetta er bara gleðihorn dagsins í staðin.
Gleðihorn dagsins: Where the hell is Matt? …efast ekki um að Matt sé frábær maður.
Koss til ykkar :*
Krummi


3 comments
Comments feed for this article
3 apríl, 2009 kl. 14:45
Kristín Grímsdóttir
I like..
Gaman að þú skulir vera farin að taka upp þráðinn hér. Hlakka til að lesa skemmtilegar pælingarnar þínar, sem koma væntanlega daglega, ekki satt ?
3 apríl, 2009 kl. 16:35
Heiðrún Erna
Hæ elsku Krummalingurinn minn!!

Mikið er ég glöð að þú sért farin að pikka á lyklaborðið aftur!
Ég hlakka til þegar þú áttar þig á því að þú átt að fara í skóla í Odense.
Lovjú
3 apríl, 2009 kl. 18:43
Sunna Kristín
Hæhæ sæta lúsínan mín:D gaman að heyra að þú ert ánægð með lífið og vorið sé að skríða til Íslands;)
Ég hlakka til þegar þú áttar þig á því að þú átt að fara í skóla á Jótlandi!
Híhíhí…saknjú í botn:*