Ùff langt sìdan sìdast og ekki mèr ad kenna heldur fjalllendi Bòlivìu, rafmagnsleysi, skorti à klukkustundum og einkar slakri internettengingu! Ef èg stikla à stòru thà hofum vid gert ymislegt okkur til dundurs.
Fòrum à sandbretti ì sandoldum Daudadalsins sem var geggjad. Vid vorum eins og faedd ì thetta, duttum ad sjàlfsogdu aldrei og renndum okkur eins og pro sorfarar nidur brekkurnar. Hinir voru ekki eins gòdir og vid nàdum skemmtilega òheppnum nàunga à vìdjò thegar hann datt beint à munninn og gleypti fullt af sandi. Fyndinn kall!:)
Svo fòrum vid ì mjog hrista jeppaferd yfir til Bòlivìu ì thrjà daga. Laerdum ymislegt, t.d. ad madur eigi ekki ad tala mjog hratt ì 5600 metra haed yfir sjàvarmàli og ekki hlaeja nema anda reglulega à milli. Bìlstjòrinn var toffari med gull ì tonnunum og kaeruleysislegt yfirbragd. Hann àtti fjolskyldu ì hverjum bae, ekki mikid um samgongur tharna à milli nema ad hàlfu tùrista. Hann var ekki ì vandraedum med malar og sandvegina, renndi bara yfir thetta eins og ekkert vaeri og hlò bara thegar èg og Birna, sem vorum ad sjàlfsogdu settar aftast vegna heppilegrar smaedar, skolludum thakid eda klesstumst à rùduna. Svo datt varadekkid af thakinu og allir voru mjog fegnir ad thad var ekki einn af bakpokunum. Erum semsagt reynslunni rìkari eftir thessa ferd eins og adrar ì thessari heimsàlfu. Sàum lamadyr, hàrkolluthùfur, fjoll, thùsundir ferkìlòmetra af salti, flamingòfugla, rautt lòn, blàtt lòn, hvìtt lòn og graent lòn, ref, fàlka, yfirgefid thorp, anakonduà og margt, margt, margt fleira. En myndir segja meira en thùsund ord og èg var nòg og asskoti lengi ad setja myndirnar inn svo èg gef theim bara ordid… http://www.flickr.com/hrafnhildurm Skodid og njòtid.
Bòlivìa med àhugaverdari londum sem èg hef komid til. Konur med bornin sìn à bakinu ì litrìkum teppum klaeddar thykkum pilsum og undirpilsum, svuntum og med kùluhatt. Setning sem èg hèlt èg myndi aldrei segja: “Sjàidi litlu saetu indjànakonuna sem situr tharna….hey er hùn ad pissa à gangstèttina?” og thad var hùn svo sannarlega ad gera, mjog thaegilegt thegar manni er màl verd èg ad segja. Roltum samt bara framhjà enda margt litrìkara og àhugaverdara ad sjà. Vid Birna erum samt ànaegdar med ad vera à haed vid medalstòrann karlmann hèr à bae. Thad thydir samt ad Jòi og Reynir eru ekki ì edlilegri staerd og fà komment eins og “bigg bigg man” og vid fàum “ùùù verrì bigg husband”. Okkur finnst thad fyndid og èg er ekki frà thvì ad teim finnist thad smà gaman:D
Nù erum vid samt ì Perù ad fara ad skoda Machu Picchu ekki à morgun heldur hinn. GamanGaman! Frèttir af thvì eftir nokkra daga.
Skodid bara myndir thangad til thà
Kv. Ferdalangarnir


11 comments
Comments feed for this article
20 október, 2008 kl. 23:58
Sunna Kristín
og borðuðuð lamadýrsbarn:O hehe
Það er ekkert smá sem þið eruð að upplifa:) maður fær bara menningarsjokk af því að lesa þetta! hehe en knús á ykkur sæta fólk;)
21 október, 2008 kl. 18:22
Brynja og Magnús
Sæl verið þið öllsömul og takk fyrir frábæra myndasýningu og frábært blogg! Þetta hlýtur að vera “en utrolig oplevelse!” – En við erum ekkert öfundsjúk hérna í góðærinu á Fróni!
Mættum við fá meira að heyra?
Góða ferð á slóðir Inka!
Söknum ykkar!
Kveðja, Brynja, Magnús, Sig. Ingi og Unnar.
21 október, 2008 kl. 19:25
Heiðrún Erna
Gaman gaman!
Eg verð greinilega að gera mér ferð til Bolivíu til þess að fá þessa STÓRU upplifun að vera STÓR!
Í fyrradag sá ég leðurblöku. Spennandi?
21 október, 2008 kl. 21:34
Sunna Kristín
Btw. æðislegar myndir:D
21 október, 2008 kl. 21:39
Kristín Grímsdóttir
Enn og aftur: gaman að sjá og lesa. Flottar myndir. Sérstaklega góð þar sem verið er að skamma Reyni..
En hvernig ferð fariði upp á Macchu Picchu ? Inca Jungle Trek and Biking eða annað ? Fenguð þið góðan díl ? Engin háfjallaaveiki..?
Hlakka til að fá ítarlegri færslu. Og góða skemmtun..
21 október, 2008 kl. 21:55
Sædís og fjölskylda
Gaman að frétta af ykkur, góða skemmtun.
Kveðja
Dröfn frænka og co
21 október, 2008 kl. 22:18
Kristín Gjé
ég fór að hlæja að kaktus myndinni… þeir eru allir að gera fookjúmerkið… ég er barn ég veit…
og svo hló ég líka að módel myndinni af jóa við þessa kubba þarna:) og myndirnar þínar eru í heildina geeeeggjaðar Hrafnhildur mín
hlakka til að fá myndasjó og ferðasögur þegar þið komið heim
sem er hvenær btw,?
22 október, 2008 kl. 12:51
Hrafnhildur
Heidrùn: Jà ledurblokur eru spennandi! Erum ad leita hèr…
Kristìn: Forum upp à Machu Picchu ì Inka Jungle trek, leist best à thad. Fengum àgaetis dìl og nei…engin hàfjallaveiki enn sem komid er.
Kristìn hin: komum heim 11. des:D
22 október, 2008 kl. 13:55
Stebba
Vá hvað þetta er allt saman spennandi! Get ekki beðið eftir að sjá restina af myndunum og heyra ítarlegri ferðasögur!
23 október, 2008 kl. 10:42
Kristin mamma og tengdamamma
Sæl og blessuð elskurnar mínar. Gaman að lesa bloggið þitt Hrafnhildur mín og skoða myndirnar. Góða ferð áfram og hafið það sem allra best kveðja fra Hlaðavöllunum
23 október, 2008 kl. 10:47
Þórunn
vá gaman gaman hjá ykkur, og ekkert smá flottar myndir:) Við í vinnunni hlóum að myndinni ,, glugginn minn er í Bólivíu” híhí;)
hlakka til að heyra í ykkur næst, hafiði það gott þangað til:*
p.s nýjasta setningin hans Sigga er : ég er súperman:):)