Fimm dagar þangað til við leggjum í hann
Allt að verða tilbúið
Það er 27 stiga hiti í Sao Paulo, vahú!
Við fórum í berjabústað um helgina og sögðum bless við familíuna
Strákarnir sýndu íslenska karlmennsku og dug
Svo fórum við í bæinn
Tókum fram úr Ragnari á leiðinni, hann reyndi að halda í við okkur en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir missti hann fljótt af okkur og varð að láta sér lynda að finna lyktina af útblæstrinum úr bílnum okkar áður en við hurfum fyrir sjóndeildarhringinn. Aumingja Ragnar.
Við fengum sprautu í bænum, það var ekki gott
Keyptum líka ýmsilegt nytsamlegt eins og nærbuxnaumslög, vasahníf, kærustu handa Bruce Waterman, áfyllingu í penna og þess háttar.
Þá á bara eftir að þvo og troða síðan öllu í bakpoka
Það vilja allir keyra okkur á flugvöllinn, barist verður um bílstjórastöðuna í garðinum heima hjá mér aðfaranótt sunnudags. Áhugasamir mæti stundvíslega
Þeir sem vilja bara koma og kveðja okkur hérna heima mega koma hvenær sem er, við verðum bara heima að pakka.
Krummi lipurtá.






4 comments
Comments feed for this article
2 september, 2008 kl. 12:34
ragnarr
hahaha kjaftæði, þið fenguð sko að anda inn dísel útblæstrinum úr skodanum mínum, spoilerinn gerði gæfumuninn
3 september, 2008 kl. 21:18
Sunna Kristín
Ókei ég þurfti að rýna í myndina til að skoða hvaða andlit væri á vaxtarræktartröllinu með Unnari þarna….brá soldið þegar ég sá að þetta var hann Sigurður Ingi litla dúllukrúttið mitt…ég er ennþá aðeins að jafna mig! en þið eruð ekki ennþá búin að troða mér oní bakpoka…ég skal alveg vera í nærbuxnahólfinu…hvenær á ég að mæta??
4 september, 2008 kl. 13:05
Hrafnhildur
Haha…já þetta er hann Sigurður Ingi sem var pííínulítill fyrir korteri síðan:) Og já, mættu ca. klukkan 6 á flugvöllinn, ekki vera búin að drekka neitt voða mikið, taktu með þér nesti í litlum pökkum og vertu búin að teygja á…;)
5 september, 2008 kl. 15:24
Sunna Kristín
ohh…ég sem ætlaði að djamma á laugardaginn! sorry krakkar, sleppi því sko ekki…ég kem bara með næst:P