You are currently browsing the daily archive for september 2nd, 2008.
Fimm dagar þangað til við leggjum í hann
Allt að verða tilbúið
Það er 27 stiga hiti í Sao Paulo, vahú!
Við fórum í berjabústað um helgina og sögðum bless við familíuna
Strákarnir sýndu íslenska karlmennsku og dug
Svo fórum við í bæinn
Tókum fram úr Ragnari á leiðinni, hann reyndi að halda í við okkur en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir missti hann fljótt af okkur og varð að láta sér lynda að finna lyktina af útblæstrinum úr bílnum okkar áður en við hurfum fyrir sjóndeildarhringinn. Aumingja Ragnar.
Við fengum sprautu í bænum, það var ekki gott
Keyptum líka ýmsilegt nytsamlegt eins og nærbuxnaumslög, vasahníf, kærustu handa Bruce Waterman, áfyllingu í penna og þess háttar.
Þá á bara eftir að þvo og troða síðan öllu í bakpoka
Það vilja allir keyra okkur á flugvöllinn, barist verður um bílstjórastöðuna í garðinum heima hjá mér aðfaranótt sunnudags. Áhugasamir mæti stundvíslega
Þeir sem vilja bara koma og kveðja okkur hérna heima mega koma hvenær sem er, við verðum bara heima að pakka.
Krummi lipurtá.





