You are currently browsing the daily archive for ágúst 27th, 2008.
11 dagar í þetta og allt að smella saman. Það var pínulítið vesen með síðustu bólusetninguna (Yellow Fever). Ég fann fína síðu, ferdavernd.is, með upplýsingum og ráðgjöf um ferðamannabólusetningar. Þeir framkvæma líka bólusetningar svo ég hringdi og pantaði tíma. Í öllu atinu gleymdi ég að sjálfsögðu að spyrja hvað þær kostuðu. Birna hringdi þessvegna aftur í þeim erindum en konan sem svaraði vildi ekki gefa upp verð… Ég er eitt spurningamerki. ? Ef ég færi í Ikea og segði: “Afsakaðu, hvað kostar þessi sófi?” og afgreiðslumaðurinn svaraði: “Tjah, það vil ég ekki segja þér” þá segi ég ekki “heyrðu ég á alltof mikið af peningum, ég tek hann!” Ég segi: “Jahá!” fer út úr búðinni og kaupi sófa sem ég veit hvað kostar. Við ákváðum semsagt að versla þar sem við gætum verið viss um hvað við þyrftum að borga fyrir þjónustuna svo við pöntuðum tíma á heilsugæslunni í Glæsibæ. Þar var konan í afgreiðslunni ekkert nema indæl og almennileg. Svo indæl að ég var komin með það fram á varirnar en svo hugsaði ég að þannig endaði maður ekki símtöl við ókunnugar manneskjur. “Bless og takk fyrir, þú ert frábær, indæl og almennileg kona:)”? Svo ég stillti mig og sagði takk fyrir og bless með bros á vör. Kannski heyrði hún það.
Sendi henni og öllum sem eru glaðir og kurteisir í dag þessa mynd af gleðimanninum á ströndinni og bið þá að halda áfram að gleðja aðra. Það ætla ég að minnsta kosti að reyna að gera:) Og viti menn, hann er á strönd…og við sem verðum á strönd eftir 12 daga með bros út að eyrum. En gaman:D
Kv. Krummi Lipurtá


