Þá erum við öll komin með bólusetningar fyrir öllu sem maður getur orðið veikur af og orðin ódrepandi, sem er mjög nauðsynlegt. Við erum líka komin með grundvallarskóbúnað, semsagt ecco sandala sem eru ameisinglí bjútífúlog ekki vitund groddalegir og buff sem er ómissandi fyrir alla túrista með hár samkvæmt öllum tékklistum. Við erum líka búin að redda okkur ýmsu öðru. Bakpokar – check, flugmiðar – check, vegabréf – check, Jói sem veit hvert við erum að fara – check og þá á bara eftir að skoða nokkur smáatriði eins og gulusprautu, tryggingar, first-aid kit, vasahníf, innanklæðaveski og allt hitt draslið. Efast stórlega um að við eigum eftir að ná að troða þessu öllu í 65 lítra bakpoka þrátt fyrir ofgnótt af skipulagshæfileikum…og við sem erum búin að bjóða Sunnu far í Jóa bakpoka. Held að háhæluðu skórnir verði því miður eftir heima með fína kjólnum…en ég frétti að þeir selji ýmislegt þarna í Suður Ameríku…;)
En nóg af undirbú
ningi.
Hann á afmælí daaaag, hann á afmælí daaaag, hann á afmælann Jóiiiii! Hann á afmælí daaag:D
Afmælisbarn dagsins að þessu sinni er hann Jói. Hann er að fara að spila á eftir á Selfossvelli klukkan 18:30 og ég hvet sem flesta til að mæta á staðinn og öskra afmælissönginn í gjallarhorn:D
Krummi lipurtá


6 comments
Comments feed for this article
21 ágúst, 2008 kl. 20:14
Kristín
Vá, var búin að skrifa langt komment með góðum ráðum en það hvarf þegar ég gleymdi að skrá netfangið. Damn.
En í stuttu máli:
-Ekki kaupa innanklæðaveski hér.
-Ekki kaupa hér hluti einsog sjampó í litlum brúsum, plástra o.þ.h.
-Kaupið þetta allt saman úti. Mjög aðgengilegt og MUN ódýrara.
Og ef þið eruð að velta e-rju fyrir ykkur ekki hika við að spyrja. Megið endilega njóta góðs af okkar mistökum og einnig því sem heppnaðist betur..
21 ágúst, 2008 kl. 20:53
Aldís og Sigurjón
Við könnumst alveg við þetta vesen áður en maður fer út… :-p Okkur heyrist þið bara vera í nokkuð góðum málum samt sem áður.
Okkur hlakkar bara ótrúlega til að fylgtjast með þessari ævintýraferð ykkar… Og til hamingju með afmælið Jóhann ;*
21 ágúst, 2008 kl. 20:54
Aldís og Sigurjón
Og til hamingju með sigurinn áðan Jói
22 ágúst, 2008 kl. 12:59
Laufey Ósk
hæhæ
bara að kíkja
þetta hljómar þannig að spennandi ferðalag sé í vændum hjá ykkur og ég mun örugglega fylgjast með
gúd lokk
26 ágúst, 2008 kl. 15:31
ragnarr
elska ykkur
26 ágúst, 2008 kl. 16:39
Stebba
Þvílík fegurð sem hann Jóhann býr yfir!
Það verður bara spennandi að fylgjast með ykkur í haust!