You are currently browsing the monthly archive for ágúst, 2008.

11 dagar í þetta og allt að smella saman. Það var pínulítið vesen með síðustu bólusetninguna (Yellow Fever). Ég fann fína síðu, ferdavernd.is, með upplýsingum og ráðgjöf um ferðamannabólusetningar. Þeir framkvæma líka bólusetningar svo ég hringdi og pantaði tíma. Í öllu atinu gleymdi ég að sjálfsögðu að spyrja hvað þær kostuðu. Birna hringdi þessvegna aftur í þeim erindum en konan sem svaraði vildi ekki gefa upp verð… Ég er eitt spurningamerki. ? Ef ég færi í Ikea og segði: “Afsakaðu, hvað kostar þessi sófi?” og afgreiðslumaðurinn svaraði: “Tjah, það vil ég ekki segja þér” þá segi ég ekki “heyrðu ég á alltof mikið af peningum, ég tek hann!” Ég segi: “Jahá!” fer út úr búðinni og kaupi sófa sem ég veit hvað kostar. Við ákváðum semsagt að versla þar sem við gætum verið viss um hvað við þyrftum að borga fyrir þjónustuna svo við pöntuðum tíma á heilsugæslunni í Glæsibæ. Þar var konan í afgreiðslunni ekkert nema indæl og almennileg. Svo indæl að ég var komin með það fram á varirnar en svo hugsaði ég að þannig endaði maður ekki símtöl við ókunnugar manneskjur. “Bless og takk fyrir, þú ert frábær, indæl og almennileg kona:)”? Svo ég stillti mig og sagði takk fyrir og bless með bros á vör. Kannski heyrði hún það.

 

Gleðimaðurinn

Gleðimaðurinn á ströndinni

Sendi henni og öllum sem eru glaðir og kurteisir í dag þessa mynd af gleðimanninum á ströndinni og bið þá að halda áfram að gleðja aðra. Það ætla ég að minnsta kosti að reyna að gera:) Og viti menn, hann er á strönd…og við sem verðum á strönd eftir 12 daga með bros út að eyrum. En gaman:D

 

Kv. Krummi Lipurtá

Þá erum við öll komin með bólusetningar fyrir öllu sem maður getur orðið veikur af og orðin ódrepandi, sem er mjög nauðsynlegt. Við erum líka komin með grundvallarskóbúnað, semsagt ecco sandala sem eru ameisinglí bjútífúlog ekki vitund groddalegir og buff sem er ómissandi fyrir alla túrista með hár samkvæmt öllum tékklistum. Við erum líka búin að redda okkur ýmsu öðru. Bakpokar – check, flugmiðar – check, vegabréf – check, Jói sem veit hvert við erum að fara – check og þá á bara eftir að skoða nokkur smáatriði eins og gulusprautu, tryggingar, first-aid kit, vasahníf, innanklæðaveski og allt hitt draslið. Efast stórlega um að við eigum eftir að ná að troða þessu öllu í 65 lítra bakpoka þrátt fyrir ofgnótt af skipulagshæfileikum…og við sem erum búin að bjóða Sunnu far í Jóa bakpoka. Held að háhæluðu skórnir verði því miður eftir heima með fína kjólnum…en ég frétti að þeir selji ýmislegt þarna í Suður Ameríku…;)

En nóg af undirbúningi. 

Hann á afmælí daaaag, hann á afmælí daaaag, hann á afmælann Jóiiiii! Hann á afmælí daaag:D 

Afmælisbarn dagsins að þessu sinni er hann Jói. Hann er að fara að spila á eftir á Selfossvelli klukkan 18:30 og ég hvet sem flesta til að mæta á staðinn og öskra afmælissönginn í gjallarhorn:D 

Krummi lipurtá

Jæja, þá eru bara 24 dagar þangað til við leggjum af stað út í “óvissuna”. Ekki frá því að við séum komin með fiðring í magana okkar svo það er löngu kominn tími fyrir fyrsta bloggið. Síðan er gerð til þess að allir geti fylgst sem ferðalagi okkar um Suður Ameríku hvort sem þeir eru að spá í svona ferð sjálfir, hafi gaman af að lesa blogg hjá ókunnugu fólki eða að þeim þykir bara svona ógurlega vænt um okkur:) 

Þar sem við erum fátækir námsmenn á krepputímum leituðum við uppi ódýrasta flugið fram og til baka. Okkur tókst ágætlega upp en það verður mikið um millilendingar;) En við erum jákvæð og elskum millilendingar, bið á flugvöllum og ferðaþreytu;) Getum jafnvel skoðað Eiffelturninn og Dómkirkjuna í Mílanó og droppað við í Köben á leiðinni til og frá Sao Paulo.

Hérna er leiðin í mjög grófum dráttum. Kemur í ljós hvort við endum í Perú eða Ekvador og hvernig við komumst svo aftur til Sao Paulo. Höfum enn ekki ákveðið alla staðina sem við ætlum að heimsækja, hversu lengi við verðum á hverjum stað, hvernig við komumst á milli staða eða hvar við ætlum að sofa. Ferðin er semsagt full af spennandi óvissuþáttum og áætlunin mjög sveigjanleg:) 

Endilega fylgist með, skoðið myndirnar þegar þær koma inn (linkur hér til hliðar inn á Flickr) og látið vita af ykkur með því að kommenta:D 

 

Kveðja Krummi Lipurtá:D