Um daginn fékk ég eitt af mínum reglulegu bjartsýnisköstum. Málið með mín bjartsýnisköst: þau sprengja alla skala. Í þessu kasti skráði ég mig í Jump Fit, þrisvar sinnum í viku klukkan sex á morgnanna.

Jóhann: Whaaaaaat!?! Án grins! Þú nennir ekki einu sinni að tala á morgnanna og borðar morgunmatinn með lokuð augun!
Krummi: Ég veit☺ og btw – ég skráði þig líka….ekki gaman??? :D

Ég og Jói að sippa saman:D Oooo!

Ég og Jói að sippa saman:D Oooo!

Í síðasta kasti skráði ég mig í Reykjavíkur-maraþonið og borgaði hvorki meira né minna en þrjúþúsundkall fyrir að fá að hlaupa um stræti Reykjavíkur í rauðum bol ! Ekki enn farin að sjá fram á hvernig ég ætli að klára mig af þessari vegalengd en það kemur í ljós.

Fyrst ætla ég allavega að reyna að klára mig af sippinu. Það er gaman að sippa er það ekki? Átti klikkað regnbogasippuband með glimmeri þegar ég var sjö, spurning hvort ég verði ekki að láta eitthvað sportsippuband nægja í bili, held að Jói tæki sig samt ágætlega út með hitt, ætlað reynað finna það:) Hann verður glaður:D

Svo er kannski spurning um að í næsta bjartsýniskasti verði markmiðið sett lægra eða farið hægar í sakirnar: mig langar til Taílands:D

Krummi (og Jói ) sem ætla að vakna klukkan hálfsex á morgun og farað sippa…

Hef aldrei á ævinni beðið svona fast eftir einu litlu bréfi. Þegar það síðan kom var taugatitringurinn orðinn það mikill að ég varð að róa mig niður í smá stund áður en ég náði að peppa sjálfa mig upp í að opna það…plísplísplísplísplísplís!!!…opnaði það með lokuð augun og kíkti svo…”Það er mér gleðiefni að tilkynna þér að….” *gleðihopp* wahhhh ég komst inn ég komst inn ég komst inn!!! Eintóm gleði!

Gleðihorn dagsins: Ég komst inn í arkitektúr í Listaháskóla Íslands:D Svííít! Ég bý á skýi! 90 sem sóttu um, 15 sem komust inn svo ég er sátt. Byrja 24. ágúst svo hér með erum við hjúin að leita okkur að íbúð í nágrenni við LHÍ og HÍ. Við lofum að vera bestu leigjendur heimsins!

P.s. ég var sjóræningi um helgina…það var gaman. Takk fyrir gott sjóræningjaskrall jú pæreits!

Ahoy! Krummi sjóræningi og verðandi arkitekt! IMG_5845

Sofnaði seint, svaf ekkert svo vel og vaknaði snemma…með ÓlaLokbrár-sand í augunum. Ekki frá því að maður sé aðeins slappur líka…? Svo er kalt úti, rigning og frekar svona drungalegt yfir öllu auk þess sem það er Sunnudagur. Ég held þetta séu nóg og margar ástæður fyrir kósýkvöldi í kvöld, kúr undir teppi í ullarsokkum og náttbuxum, með stýrur í augunum, dregið fyrir og bara kveikt á einum lampa og kertum og Stellu í orlofi í imbanum….mmm, kaldir sunnudagar eru góðir dagar:)

Svo er náttúrulega júróvisjón að byrja bráðum…ástæða fyrir enn meira kúr:) Ég elska kúr…

Gleðihorn dagsins – Ævintýri frá Noregi:)

Áfram Noregur! :D

Krummi föðurlandsvikari…

Sumarið er komið, enginn vafi á því, sólin er komin til að vera. Það eru köngulórnar samt líka…, sem mér finnst ekkert geggjað. Þær eru út um allt, maður ætlar að fara úr skónum og styður sig við vegginn, úps…kramin könguló, maður er að teygja á úti á palli, í sólbaði eða rúmið manns staðsett rétt fyrir neðan gluggan, þær eru út um allt! Því fylgja að sjálfsögðu nett panicattacks með danski, öskrum og tilheyrandi hrolli sem ætlar aldrei að fara og endar í stjörfu augnaráði uppi á stól.Hví?

Kalli Könguló

Kalli Könguló

Hvað varð um þá gömlu góðu daga þegar köngulóastofnar voru ræktaðir í krukkum og köngulærnar látnar hlaupa upp og niður hendur og fætur og þjálfaðar í að hanga? Maður spyr sig. Þær komust meira að segja stundum ofaní hálsmálið án þess að neinn kippti sér upp við það. “Ohh hún týndist einhverstaðar í fötunum mínum” og síðan dró maður annað grey á löppinni upp úr krukkunni og lét hana hanga í lófanum. Maður náttúrulega nýbúinn að kynna sér málin og lesa Andrésblað um flóasirkus og ætlaði aldeilis að græða á köngulóm og dordinglum hverfisins. Síðan gerðist eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Fylgir þetta aldrinum? Ég er allavega búin að reyna og reyna að láta mér líka vel þessi dýr afþví það væri svo miklu einfaldara en allt kemur fyrir ekki, get ekki einusinni potað í þær. Og trúið mér, ég er búin að reyna ýmislegt. Spurning um að horfa á teiknimyndir þar sem góðar köngulær bjarga málunum og athuga svo…

Gleðihorn dagsins: er fyrir þá sem enn ætla sér að meika það með köngulóadordinglasirkus. Við hin bíðum spennt…Hérna er  fróðleikur um íslenskar köngulær og svo er meira að segja könnun á netinu sem hægt er að spreyta sig á (án endurgjalds) og athuga hvað maður veit mikið um íslenskar köngulær. Ég fékk þrjú rétt af sjö…

Kveðja, Krummi Könguló…

Ég ætla ekki að tala um úrslit kosninganna af því mig langar ekki til þess☺ Jeij!

Ég ætla þess vegna að tala um allt milli himins og jarðar annað en kosningar☺

Til dæmis um….. Jóga? Sem er skemmtilegt. Fyrst fór ég í jóga afþví að mamma tók mig með og satt að segja fannst mér þetta svona frekar leim og skildi ekki hvað allir voru ánægðir með þetta, ég gæti alveg eins teygt á heima hjá mér og gert magaæfingar (sem ég geri btw aldrei). Síðan fattaði ég að jóga er frábært og finnst að allir eigi að prufa það. Setti allskonar linka hérna til hægri. M.a. þar sem ég fer í jóga, sex tímar í boði á viku ef maður borgar 8.500 kr. Gildir til 1 júní. Jóga er málið…☺

Eðaaa…orð. Lets feis itt, það eru nú flestir með einhverskonar þráhyggju hvort sem það er orð, að telja (tröppur/skref/munnbita/ofl), brjóta saman á ákv. hátt, o.s.frv.…ég er allavega með fullt af svona “þráhyggjum” og mig grunar stundum að ég sé með smávegis asperger heilkenni. Eitt af mínum þráhyggjum eru orð.
Var að velta fyrir mér orðinu “hamingja” sem er eins og flestir vita “happiness” á ensku. “Happiness” er náttúrulega mun þægilegra. “Hamingja” þýðir í rauninni ekkert nema bara “hamingja” (hvað er það? ham-ingja, ha-mingja? Haming-ja???) á íslensku og þess vegna eigum við rosa erfitt með að skilgreina hana. Höfum ekki hugmynd um hvort við erum hamingjusöm eða ekki afþví orðið er e-ð skrítið. Orðið “happiness” aftur á móti er auðveldara í túlkun, happy er einfaldlega bara “glaður” og “happiness” er þessvegna bara gleði eða gleðitilfinning. Sem þýðir (í mínum heimi allavega) að hamingja sé einfaldlega bara að vera sem oftast glaður. Restin er einföld – þú gerir einfaldlega bara það sem gerir þig glaðan og þá ertu hamingjusamur☺ Ég er búin að finna tilgang lífsin…tadaaaaa:D

Af því tilefni er gleðihorn dagsins(sem dreifir gleði og gerir þar með alla hamingjusama) þessi glaði maður…tadaaaaa:D

tadaLifið heil (og hamingjusöm)

Krummi lipurtá:D

Ég er með sjúkdóm sem heitir Valkvíði og fæ valkvíðakast við ótrúlegustu tækifæri. Á þessvegna til dæmis ótrúlega erfitt í kring um kosningar en tókst samt að ákveða mig inni í kjörklefanum í dag bara út af pressunni…aðrir verða að komast að líka, annars eru þetta ekki kosningar. Var búin að hafa áhyggjur af þessu í rúma viku, las og las um jákvæðar og neikvæðar hliðar evrópusambandsins, hátekjuskatt, stóriðju og ýmislegt fleira og var eiginlega búin að ákveða að fara í þykjustuleik um helgina, þykast að það væru engar kostningar, þykjast að ég ætti ekki útvarp og ekki sjónvarp og krota bara x á spegilinn minn með varalit afþví pabbi sagði að minns yrði að setja x-ið einhverstaðar. Tók mig samt saman í andlitinu og fór að kjósa, varla hægt að vera í þykjustuleik endalaust, stóð inni í klefanum í korter og færði blýantinn á milli tveggja kassa þangað til ég varð orðin rangeygð. Endaði með því að ég setti x-ið í annan reitinn…er enn ekki viss hvort það var rétti reiturinn, en það var þó gert með góðri trú eftir bestu sannfæringu.

Einn af kostunum við þetta x er samt ekki fleiri áróðurssímtöl, – bæklingar, -bréf, – auglýsingar og tómar rökræður og vonandi fækkar líka fólkinu sem finnst fáránlegt að mér finnst ekki það sama og því og er sannfært um nauðsyn þess að ég fái nú að vita allan sannleikann, sem er einfaldlega ekki til að mínu mati. Vúhú!

Gleðihorn dagsins:

Mér líður svona…vona að þér líði eins..:)

glec3b0ihopp

Eigið gott kosningakvöld

KosningaKrummi

GleÐilGt SuMAar! Víhí! Vaknaði meira að segja með sumarlykt í nebbanum í morgun. Hún var góð:)

Markið er sett hátt í sumar, sat fyrirlestur um markmiðasetningu um daginn þar sem þjálfari handboltalandsliðsins (sem hefur efni á að tala um markmiðasetningu að mínu mati) sagði að markmið ættu í rauninni alltaf að vera “óraunhæf”. Hljómar undarlega en hann rökstuddi þetta svo vel og var líka með ólympíumedalíu um hálsinn (sem var þetta “óraunhæfa” markmið sem hann setti sér) sem sannfærði mig enn frekar um að hann vissi kannski alveg hvað hann væri að tala um:)

Ákvað að taka hann til fyrirmyndar og stefna á mín “fyrstu þrjú sæti”, þ.e. að hlaupa 10 km. 10 km er kannski engin brjáluð vegalengd nema fyrir fólk sem nennir ekki að standa upp úr sófanum á kvöldin til þess að fara að sofa, semsagt fólk eins og mig. Fyrir mig  eru 10 km eins og að lyfta fjalli og það ætla ég að gera þann 22. ágúst í Reykjavíkurmaraþoninu. Vill einhver koma með? Þegar ég verð búin að því þá ætla ég að fara smá að gráta og kaupa mér síðan verðlaunapening sem stendur á að ég sé awesome markmiðanáari:D Þangað til þá heldur Jóhann áfram að murka úr mér lífið til þess að ég geti staðið við þetta alltsaman. Gaman Gaman. Var til dæmis eins og vínber á litin áðan þegar við komum af skokkinu okkar, gaman að segja frá því..:)

Gleðihorn dagsins.

Afþví það er sumardagurin fyrsti þá var náttúrulega rigning í dag. Hérna er sólin sem hefði átt að vera, þá erum við allavega með sól í hjarta:) Og þið sem eruð í Danmörku, lokiði augunum afþví þið hafið ekki gott af meiri sól, þessi sól er bara fyrir íslendinga í blautum sokkum eftir að hafa stigið í sumardagsinsfyrstapoll.

solAu bientot

SumarKrummi flowers

Hvernig væri að skrifa framtíðarblogg? Svona you-are-the-master-of-your-own-destiny- blogg…

Mitt yrði svona:

Úff hvað næsta vika verður frábær! Ætla að fara í bæinn að versla í tóma fataskápinn minn sem verður bara gaman af því ég á eftir að passa í öll fötin sem mér finnst fín og svo eru þau ódýr líka…en gaman! Síðan ætla ég að fara á kaffihús og panta mér stóórann sviss mokka sem verður sá besti sem ég hef smakkað, heppilegt! Svo ætla ég að keyra heim uppdressuð með besta kaffi í heimi og syngja hástöfum með útvarpinum sem spilar bara skemmtileg lög akkurat þann hálftímann:) Ég ætla líka að fara út að hlaupa, hitta einhvern skemmtilegann sem ég hef ekki hitt lengi lengi, teikna fallega útskriftarnema, horfa á nýja How I met your mother sem verður sko fyndinn, fá fullt af hressu fólki í heimsókn og uppgötva eitthvað awesome! Ofl. Ofl. Ofl. skemmtilegt…Og síðan ætla ég náttúrulega að kjósa rétt…;)

Ekkert litlar væntingar, heppilegt að þetta verður akkúrat svona og jafnvel enn betra…! :D

Gleðihorn dagsins:

Þessi mynd “made my day” í gær. Langar á hana í bíó…aftur. Og það gerist ekki oft.


Túdilú…

Vegna mikils þrýstings frá Dönum (og líka ákveðnum Íslendingum) sem hitta mig ekki úti í Horni annanhvern dag (long storí) hef ég ákveðið að blogga.

Það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast. Ekki fræðilegur að ég nenni að segja frá því í smáatriðum…stiklað á stóru? Ég flutti, varð 21 árs, fann nám, fór í nám, kláraði nám, sótti um nám og núna er ég bara heima að baka:)

Ég fann semsagt loksins nám sem hentaði mér fullkomlega, flís við rass. Og viti menn…það var bara tveir mánuðir! Hlaut að vera! Þetta voru samt alveg splendid tveir mánuðir þar sem ég lærði ýmislegt það mikilvægt og skemmtilegt að ég er hissa að hafa komist af án þess hingað til. Og ég er líka hissa á að hafa lært þetta allt á bara tveimur mánuðum og skemmt mér jafn mikið á meðan! Gleðifréttirnar fyrir ykkur er að þetta verður endurtekið, sjá hér og hér☺ Gleðifréttirnar fyrir mig eru að núna er ég nýfæddur Prismalingur, regnbogi og ýmislegt fleira sem er frábært. Spennan er að gleipa mig. Með fylgja myndir af skemmtilegasta lokaverkefni heims sem ég að sjálfsögðu tók of bókstaflega, kostur í þessu tilfelli, eins og aðra daga. Úr varð afar metnaðarfullt abstraktrisateiknimyndasöguhandrit : Krummi09, Soon in theaters.

Áhugasamir um útgáfurétt og annað hafi samband við mig:)

Núna er ég allavega með blað upp á 16 eininga diplómagráðu, Prisma, frá Bifröst og Listaháskóla Íslands og veit enn ekki hvernig ég á að svara spurningunni “Og hvað svo?” nema núna finnst mér hún bara ekkert óþægileg. Sem er gott☺

Á meðan ég er að bíða eftir svari við umsóknum frá Listaháskóla Íslands, Kunstakademiets Arkitekthojskole, Arkitektskolen i Aarhus, Krabbesholm, Borupshojskole, Háskóla Íslands og jafnvel fleirum hef ég tekið upp á því að baka, sem er gaman og teikna fallega útskriftarnemendur ásamt fleiru skemmtilegu. Hugmynd að næstu jólagjöf – blýantsskopteikning á línuna?

Það er vorfuglasöngur úti eeeen ég nennti ekki að taka hann upp svo þetta er bara gleðihorn dagsins í staðin.

Gleðihorn dagsins: Where the hell is Matt? …efast ekki um að Matt sé frábær maður.

Koss til ykkar :*

Krummi

Við erum komin heim!

Það er best í heimi

Ég knúsaði fjölskylduna mína og fór

svo að sofa með sængina mína í nótt,

hún var mjúk og hlý,

best í heimi!

Ég fékk mér kókómjólk í morgun, hún var best í heimi!

Það er jólaskraut út um allt

Það er ískalt og rigning

og rok

Alveg eins og það á að vera

Jólin eru að koma

Ísland! Best í heimi!!

og eitt að lokum…

Til hamingju med afmælið Birnan okkar

Knús!

Kv. Við sem erum ekki lengur ferðalangar